Friday, January 13, 2012

Domino barnateppi

Hérna er Domino barna kerruteppi úr Létt Lopa
Langt síðan ég kláraði þetta en ákvað að skella því inn 
á að vísu eftir að þvo það ;)


-Ásta

Sunday, January 1, 2012

Kría- Barnapeysa úr Lopa blaðinu

Ég gerði þessa lopapeysu fyrir 1 árs prinsessu. 
Ég er ótrúlega ánægð með hana, sérstaklega litina! 
 
-Ásta

ÖmmuDúlluBylgjuteppi

Ég elska barnateppi.. hekluð teppi.. ömmudúllur.. og bylgjuteppi svo ég hoppaði hæð mína þegar ég fann heklmynstur af 
"ömmudúllu" bylgjum !!


Æðislega fljótlegt og skemmtilegt að hekla þetta! 

Garn: Special by Stylecraft. (stóru dokkurnar) 
Heklunál nr. 5 

- Ásta

Hlýjar fætur

Átti von á lítilli prinsessu í pössun um daginn og ákvað að skella í lopasokka fyrir hana, vildi breyta til og gera þá röndótta. 


Ég var að fara eftir barnasokka uppskriftinni í 
Lopi 26 uppskrift nr 22. 
En ég gerði þá hærri og hafði þá röndótta. 
Prjónar nr 3 1/2, Létt Lopi.




- Ásta

Lopi - Kerruteppi

Heklað Lopa Bylgjuteppi
Þetta teppi heklaði ég í bíl á leiðinni 
heim úr ferðalagi í sumar, 
skemmtilegt og fljótlegt að hekla þetta! 



Ég á eftir að þvo það, þannig það er ekki alveg eins pressað og fínt eins og það ætti að vera ;)

Uppskrift: Bókin Kúr & Lúr
Heklunál: 5
Garn: Létt Lopi

- Ásta

Eyrnaband - Auðvelt

Það er orðið ansi kalt úti og ákvað ég að skella í eins og eitt 
eyrnaband í gærkvöldi. 


Uppskrift: 
Garn: cool flamme (held ég að það heiti, prjónastærð 11, fæst í fjarðakaup)
Prjónar: nr. 8 
Fitjaði upp 20 lykkjur, prjónaði perluprjón þar til bandið var passlegt á mig, fellir af og saumar bandið saman. 
Þá er litli búturinn prjónaður sem að tekur bandið saman að framan. 
Fitjaði upp 6 lykkur prjónaði c.a. 8 cm, best er að bera þetta við til að sjá hvernig þetta kemur út. 
Saumar litla bútinn saman yfir eyrnabandið þar sem sárið er.

Gerist ekki mikið einfaldara ! - ein kvöldstund :) 

- Ásta